Untitled Document Untitled Document Untitled Document Untitled Document Untitled Document Fanný --> Kristí -->n Heimisdottir
Fanný --> Kristí -->n Heimisdottir
Fanný Kristín HeimisdÓttir


17.12.06  



Smålänsk ostkaka ala duelund.

Ég vann með Marianna Duelund á Åkerbo og hún gaf mér þessa uppskrift og mörg góð ráð um lífið og starfið. Þetta eru að verða matálar hér en ostakakan er mjög góð og þarf að dreifa sér ... Marianne fær felumynd af rjúpu. Myndin er tekin í austurskógum sumarið 2005.

ugnstemp 200°
tillagningstid ca 3 timmar
8-10 portioner
spara mjölkpaketen för vasslen och använd den til brödbakning senare

5 l mjölk, standard eller gammeldags
1 dl vetemjöl
2 msk ostlöpe
1/2-1 dl sötmandel
4 ägg
4 dl grädde
3/4-1 dl socker

Rör ut mjölet i lite av den kalla mjölken. Ljumma resten av mjölken till 35°C. Rör ner mjölredningen och ostlöpen i mjölken. Låt blandningen stå tills den stelnat och "mognat" minst 30 minuter. Rör sönder ostmassan t.ex. med en kraftig stålvisp. Låt stå en stund så att vasslan frigörs och ostmassan samlar sig. Häll ostmassan i ett durkslag så att vasslan kan rinna av den. Skålla, skala og grovhacka mandeln. Vispa ägg och socker, tillsätt mandel. Rör i ostmassan. Häll i smord ugnssäker form ca 2,5 liter. Grädda i mitten av ugnen ca 1 timme. Rör inte i formen under gräddningen. Servera ostkakan ljum, gärna med sylt och grädde. Ostkakan kan djupfrysas.

posted by Fanny | 17.12.06


17.10.06  



Súkkulaðikaka með kaffi - fyrir mömmu og Langisjór líka, séður af Sveinstindi

125 gr sykur
125 gr smjör
2 egg
25 gr dökkt kakó
75 gr hveiti
2 msk mjólk
1 tsk lyftiduft

Þeyta saman sykur og smjör. Bæta eggjum í og síðan þurrefnunum. Blanda þá mjólkinni í.

Útáhell

50 gr sykur
2 msk dökkt kakó
1-2 bollar sterkt kaffi

Blandið sykri og kakói og stráið yfir deigið og hellið síðan kaffinu yfir allt saman. Gætið þess að fylla ekki mótið um of þó því kaffið mun sjóða á kökunni. Bakið nú kökuna við 150°C í 50 mínútur. Berið fram með þeyttum rjóma og/eða ís. Jarðarber gera svo gott betra!

posted by Fanny | 17.10.06


17.9.06  


Myndin af Fanný ömmu og púddunum fær að vera myndin að þessu sinni. Þarna er auðvitað amma ung stúlka og alls ekki orðin margföld móðir og amma eins og seinna varð. Ég skannaði einhver ósköp af myndum þegar ég gerði vef um Bjargsættina fyrir ættarmótið okkar. Ég hef ekki uppfært vefinn lengi en verðugt verkefni væri að bæta allavega nýjum ættmennum inn fyrir næsta ættarmót.

posted by Fanny | 17.9.06


16.9.06  


Gulrótarkaka og bláklukkur fyrir Stínu.
2 bollar hveiti
2 bollar sykur
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. natron
1 tsk. kanill
3 bollar fínt rifnar gulrætur
1 bolli matarolía
4 egg

Einfaldara getur það ekki verið: Hræra öllu saman og baka við 175°C. Viljir þú baka kökuna í ofnskúffu gerðu þá eina og hálfa eða tvær uppskriftir eftir stærð skúffunnar.

Ofan á er rjómaosta/smjörkrem:
170 gr. rjómaostur við stofuhita
1/2 billi mjúkt smjör
2 tsk. vanilludropar
3 og 1/2 bolli flórsykur
Þessu er öllu hrært saman og sett yfir kökuna kalda. Gott er að setja heslihnetur yfir kökuna og einnig er gott að borða hana með ísköldum þeyttum rjóma.
Verði þér að góðu Stína!

posted by Fanny | 16.9.06


15.9.06  



Mannekla í leikskólum og á frístundaheimilum enn og aftur, þó að á hverjum degi komi fréttir um að nú sé þetta að skána; að það sé að takast að fá 'einhvern mannmassa' til að sjá um börnin. En hvernig skilgreinum við þá manneklu? Á sumum sviðum myndum við telja að ef ekki fengist fagfólk til verksins þá stæðum við frammi fyrir manneklu. Þegar um er að ræða leikskólana og vissulega líka frístundaheimilin virðumst við verða að sætta okkur við að fá manneskju en næstum bara hvaða manneskju sem er (tvífættan massa). Síðan er það allra nauðsynlegasta varðandi starfið kennt starfsmanninum í vinnunni með börnunum. Þó er ekki víst að hann verði nema fram að áramótum eða til næsta hausts vegna þess að því miður staldrar sumt af þessu fólki stutt við. Í kvöld var í fréttum að forsetinn vill að við höfum forvarnardag einu sinni á ári, en dagur til forvarna er varla nóg. Hvernig væri að velta fyrir sér hvort það hefði ekki verulegt forvarnargildi að hafa betur menntað fólk og stöðugri vinnukraft með börnunum meðan þau eru vakandi á virkum dögum? Ég vil halda því fram að ef slík mannekla sem er viðloðandi vandamál í leikskólum væri á t.d. heilbrigðissviðinu þá myndum við gera átak í að mennta fólk. Af hverju má ekki veita fleiri aðgang með þeim aðferðum sem vissulega eru notaðar en í litlum mæli þ.e. að veita fólki með starfsreynslu aðgang að diplómanámi? Það er enn til fólk sem mundi vilja fara þá leið, en það eru ekki margir teknir inn á þeim forsendum lengur og hefur náttúrulega ekki verið. Er það vegna þess að fjárveitingar eru litlar frá Menntamálaráðuneytinu eða er það vegna þess að Kennaraháskólinn er ekki í nægilegum tengslum við þann markað sem hann á það þjóna. Á Akureyri er nú nær hver staða í leikskólunum mönnuð leikskólakennurum eins og það á að vera samkvæmt lögum. Þar hefur HA þjónað þeim litla markaði vel og skólarnir þar hljóta því að sanda vel að vígi.
Myndin er barnabörnunum: Fannýju, Viktori og Nínó.

posted by Fanny | 15.9.06


9.9.06  


Að lifa lífinu hægar, hæglætislíf eða 'slow life' er málið ef marka má bókina sem ég er að lesa. Hún heitir „Lifum lífinu hægar" og er eftir Carl Honoré, breskan blaðamann. Minna er meira, með því að fara hægt verður fjölskynjun sem ekki verður annars. Að leyfa sér að slóra, gera eitt í einu og gefa sér tíma til að gera hægt: Ekki galið! Með þetta allt í huga labbaði ég í búðina áðan og keypti hráefni haustsins í kvöldmatinn, lífrænt grænt og fjallgengið rautt. Að gefa sér tíma til að ganga í búðina verður óneitanlega til þess að ferðirnar verða fleiri en þá fæst líka hreyfing og viðrun og á leiðinni er hægt að hugsa. Ég hlustaði síðan á þátt um Noam Chomsky og gagnlegar og ekki síður frískandi hugmyndir hans um líf, samfélagssýn og völd. Gufan er hæg og góð, nú er jazzþáttur... Honoré skrifar m.a. um uppeldi og menntun, ég þarf að lesa það betur og lesa aftur grein Þorvalds Gylfasonar sem ég vísa í hér á undan, sem var fyrir rúmum tveimur árum :)
Myndin sem fylgir er tekin í júli í sumar við Töfrafoss, það voru yndislegir dagar sem við áttum á svæðinu við Snæfell og á Kringilsárrana.

posted by Fanny | 9.9.06


26.8.04  

Á morgun er kominn nýr dagur segja menn og þá fáum við Stekkjarásinn afhentan ... Hann er orðinn svooo fallegur og nú verðum við að gera fallegan skóla, börnin og kennararnir og við verðum að fá hjálp foreldranna líka. Kostnaðurinn við bygginguna er 300 milljónir, þá er búið að setja inn einhver ósköp af húsgögnum í stjórnunarrýmin og í undirbúning. Þá á eftir að kaupa húsgögn fyrir börnin og öll náms- og kennslugögn. Einnig á þá eftir að kaupa leirtau, potta og áhöld í eldhús, dýnur og annað fyrir hvíld barnanna (þau eru flest 8-9,5 tíma í leikskólanum), alla myndlistarvöru, hljóðfæri og allt annað, sem tengist námssviðunum þ.m.t. tölvubúnað. Til alls þessa höfum við 8 milljónir. Er það tilviljun að það eru strákarnir sem fá 300 millurnar og við stelpurnar höfum 8? Við fórum í Barnasmiðjuna í dag og keyptum inn náms- og leikefni. Við eigum enn eftir að viða að okkur og vonandi tekst okkur einnig að skapa vilja fyrir að nota verðlausa efnið vel. Það er gott og blessað og algjörlega nauðsynlegt í svo aðþrengdu kerfi. Þorvaldur Gylfason skrifar svo um menntun í dag í Fréttablaðinu og m.a. um að þegar rangt er gefið í kerfinu/menntakerfinu er réttur barnanna skertur. Hann skrifar m.a: „Af þessu má ráða, hversu brýnt það er að búa svo að barnaheimilum, að foreldrar þurfi helzt ekki að búa börnum sínum lakara atlæti þar en þau ættu kost á heima. Þetta er hægt með því að skoða og skilgreina barnagæzlu sem menntun frekar en geymslu, fella barnaheimilin eftir þessu að skólakerfinu og verja miklu meira almannafé til þeirra en nú tíðkast til að tryggja starfsfólki þeirra góða menntun og góð kjör. En þetta er samt ekki nóg. Börn þurfa einnig að eiga greiðan aðgang að barnaheimilum, þar sem foreldrar greiða – með eða án aðstoðar almannavaldsins eftir atvikum – það verð, sem upp er sett fyrir þjónustuna. Þannig er hægt að binda endi á biðraðirnar, sem marka dagvistunarmálin í dag og spítalana og gera nú jafnvel vart við sig í framhaldsskólum og háskólum, svo að til vandræða horfir. Og þannig er e.t.v. hægt að stemma stigu fyrir því, að foreldrar sendi sumir börnin sín án vandlegrar umhugsunar eða jafnvel vitandi vits í dagvistun, þar sem börnin fá lakari þjálfun og þjónustu en foreldrarnir sjálfir, eða betri – og dýrari! – barnaheimili, gætu veitt."

posted by Fanny | 26.8.04


3.8.04  

Ekki ofsögum sagt um fegurðina á Snæfellsnesi ... Fórum að týna ber og steina og baða í lauginni okkar. Keyrðum fyrir nesið, mikið af kríu við Rif og að Ólafsvík: Ungarnir stálpaðir og verða lagðir af stað til Afríku eftir þrjár til fjórar vikur. Ís í Grundarfirði og pylsa fyrir Nínó, sem var eina barnið sem fór með í ferðina. Regnúði, sól og hlýja ...


posted by Fanny | 3.8.04


22.7.04  

Síðastliðinn sunnudag hjólaði ég austur á Þingvöll og kom sjálfri mér á óvart. Veðrið er búið að vera svo gott og hægt var að hjóla á bolnum alla leið. Ég var þrjá klukkutíma á leiðinni, en önnur kona hjólaði fram úr mér á leiðinni og bara hvarf ... Nú eru kallarnir farnir í sína árlegu ferð, góða ferð!

Myndin hér fyrir neðan er fengin að láni hjá Salvöru Gissurar, takk Salvör.


posted by Fanny | 22.7.04


15.7.04  

Fór í dag og tók nokkrar myndir í Stekkjarási. Margir að vinna þar, en bara ein stelpa í garðinum, en hún er líka á gröfu ... Öldu og Grettis sonur var að vinna þarna, hann er pípari. Skólinn verður mjög fínn nema helv... skúrarnir og hefði líklega arkitektinn þurft að leika sér meira með Lego í æsku til að lenda ekki í þeim bömmer að setja fyrst fína glugga og svo skúra beint fyrir framan þá og skyggja á Esju, Snæfellsnes og Faxaflóa ... 
  

 

posted by Fanny | 15.7.04


10.7.04  

Breki leikur sér að jeppanum sínum og ég leik mér að myndavélinni minni ... Við fórum túr að Geysi, Gullfossi, tjölduðum við Árbúðir, fórum í langa morgunstafgöngu í mikilli blíðu og skoðuðum skriðjökla sem ganga í Hvítárvatn. Keyrðum síðan að Hveravöllum og skoðuðum Eyvindar- og Hölluminjar, sem auðvitað allar heita í höfuðið á honum ... Þetta hefur verið erfitt hjá þeim. Við fórum í Kerlingarfjöll, þangað hef ég ekki komið áður, en Breki var þar í skíðaskóla þegar hann var drengur. Loks fór bremsuklossi þegar við ætluðum að fara slóð niður í Þjórsárver svo við snérum við og keyrðum heim ...

posted by Fanny | 10.7.04


7.7.04  

Tónleikar með Metallica í Egilshöll ... Jón Geir aðallögga sagði allt hafa farið vel fram og það er alla vega rétt að vel gekk að koma fólki og bílum burt úr hverfinu að loknum tónleikum. Verst hvað farið er að dimma aftur ...

posted by Fanny | 7.7.04


4.7.04  

Fanný Alva er búin að vera á landinu í viku og fékk tækifæri til að hitta vinkonu sína og fá hjá henni góða íslenskukennslu. Heim í Búðardal er hún alveg búin að læra og fleiri góða smelli. Fínu fötin á Baby Born eru keypt í Búðardal hjá handverkshópnum Bolla, mjög falleg vinna er á þessum fötum og við féllum alveg langmæðgurnar. Nú er Fanný Alva á leið til Svíþjóðar aftur með frændur sína Högna og Atla, sem ætla að vera hjá henni í viku.


posted by Fanny | 4.7.04


19.6.04  

Vasa safnið er flottasta safn sem ég hef skoðað. Hér er virkilega hægt að tala um margmiðlun. „Sveriges största katastrof har blivit Sveriges största success" segja menn. Við silgdum tveggja tíma skoðunarferð undir brýrnar í Stokkhólmi, gaman og fróðlegt.

posted by Fanny | 19.6.04
 

_aå gengur ekki aå skrifa -egar ekki eru äislenskir stafir. äEg ötaåai aå skrifa um läupäinurnar äa leiåinni äa flugvollinn. Allt var bläatt mj+g fallegt. Gönguferå äi Gamla Stan gaf täkifäri til aå rifja upp hvaå äer er skemmtilegt.

Hér er þýðing eftir að heim er komið: Það gengur ekki að skrifa þegar ekki eru íslenskir stafir. Ég ætlaði að skrifa um lúpínurnar á leiðinni á flugvöllinn. Allt var blátt mjög fallegt. Gönguferð í gamla stan gaf tækifæri til að rifja upp hvað hér er skemmtilegt. Við fórum líka í Gröna Lund ... Þar fórum við í tæki sem lofar manni 80 metra fríu falli á 110 km hraða. Jú þetta ar ansi slæmt.

posted by Fanny | 19.6.04


17.6.04  

Gleðilega þjóðhátíð ... Við fórum og keyptum okkur ís og nú vitum við af hverju Ísland dregur nafn sitt ... allir voru að fá sér ís í blíðunni. Það eru fánaborgir um alla borg, en annars ekki sérstakur hátíðarbragur. Við fórum í bíltúr í Hafnarfjörð, þar var Högni á ferð með Nínó og við skruppum að kíkja á nýju girðinguna hans. Í Hafnarfirði stóð yfir víkingahátíð í litlum skala, kannski maður eigi eftir að koma sér upp svoleiðis áhugamáli aftur þegar tími gefst til. Í Stekkjarási var verið að flísa á snyrtingu í norðausturendanum ... duglegir menn að vinna svo við komumst fljótt inn ... Takk fyrir það. Flug til Svíþjóðar á morgun, það verður gaman.


posted by Fanny | 17.6.04


15.6.04  

Kris Kristofferson í Laugardalshöllinni ... Aleinn á sviðinu, það hefði nú mátt spila undir með kappanum og gera honum þetta auðveldara. Ég var ekki með myndavél en það má svindla, ekki síst ef maður krækir á heimildina. Kris syngur fallega og er orðinn gamall og reyndur ...

posted by Fanny | 15.6.04


9.6.04  

Við gengum á Helgafellið í fallegu veðri og horfðum yfir Hafnarfjörðinn, Faxaflóann, upp að Úlfarsfelli, Bláfjöll og yfir Reykjanesið... Helgafellið býður upp á skemmtilegar klettamyndanir úr móbergi og harðari steintegundum þannig að veðrun verður sýnileg og reyndar tekur maður þátt í henni með því að ganga þarna og brjóta burt nibbur af harðara bergi úr móberginu og slíta móberginu með göngunni ... Þessi ágangur veldur líklega hraðari og öðruvísi umbreytingum en ella yrðu. Verst er að sjá hvað mosinn þolir illa að menn gangi á honum og í hlíðinni þar sem gengið er upp sést þetta glöggt.

posted by Fanny | 9.6.04


31.5.04  

Fín helgi í Eyvindarmúla... Hlíðin er fögur eins og frægt er og við fórum að Njólufossi, fórum bakvið hann og skoðuðum Markarfljótsgljúfrin. Breki skemmti sér vel á jeppanum sínum. Guðjón Máni og Gríma rifjuðu upp vináttu frá í hitteðfyrra.

posted by Fanny | 31.5.04


23.5.04  

Eftir miklar rigningar skein nú sólin í dag... Við fórum á Þingvöll með hjólin á bílnum og hjóluðum um 20 km um Þingvelli í yndislegu veðri. Skoðuðum rústir Skógarkots, skemmtilegur staður, gaman að fara þangað með krakka, held ég. Þurftum að teyma hjólin með okkur um kjarri vaxið land á mjóum stíg. Í þjónustumiðstöðinni fann ég bók um krosssaum, íslensk munstur m.a. Mér finnst að bloggið mitt sé að verða eins og klukkustrengur. Ég var að hugsa um flæði „flow theory", þegar ég var að hjóla þarna í góða veðrinu í yndislegu landslagi með Breka; hvort að algleymi væri ekki íslenska orðið yfir flæði: rapture; nirvana; ecstasy stendur þó í tölvuorðabókinni, svo ekki stemmir það nógu vel. Við þurfum að eignast íslenskt orðasafn...

Þegar við vorum að koma til baka að staðnum okkar, þar sem Kári lék sér og okkur í byssuleik um árið, tók Breki mynd af mér... Það er ekki að sjá að hitastigið sé hátt, ég er kappklædd, en við gleymdum klyfjatöskunni í bílnum og vorum því í öllum gallanum...

posted by Fanny | 23.5.04


21.5.04  

Nú er ég leið á þeim bloggmönnum, sem alltaf eru að breyta hjá sér aðkomunni. Ætti kannski að þakka þeim því líklega verður maður bara sveigjanlegur á þessu. Vinnuvikan búin, helgin komin með ausandi rigningu og hráslaga. Ég fékk loks myndir af sloti GMS og co og eina flotta af tannlausri stelpu, sem er að fá nýjar tennur... og eftir mánuð fæ ég að sjá hana...

posted by Fanny | 21.5.04


2.5.04  

Í dag er norðanvindur og bara 2.5 gráðu hiti. Ég er að lesa undir próf, en við fórum í morgun og skoðuðum Áslandið, Ástjörn og gengum upp að útsýnisskífunni á Ásfjalli. Þarna er fagurt og fjölbreytt náttúra, fuglalíf og gróður. Það verður ekki ónýtt að láta börnin í Stekkjarásnum njóta alls þessa og læra á sjálf sig og náttúruna.

posted by Fanny | 2.5.04


30.4.04  

Nínó er fallegur og góður voffi og þegar aðrir þjóra, drekkur hann bara vatn úr krananum hjá ömmu sinni ...

posted by Fanny | 30.4.04


25.4.04  

Eftir frábæra ferð til Köben, til að skoða leikskóla m.a. skógarleikskólann Skovsneppen, sem er eins og ævintýri, tók ég mynd af leikskólanum mínum og það var eina myndin mín í ferðinni.... Stekkjarás í góðu veðri, en strekkingsvindi...

posted by Fanny | 25.4.04


18.4.04  

Ég er að lesa bók Steinunnar Jóhannesdóttur um reisu Guðríðar Símonardóttur. Lít helst ekki upp úr henni, en skoða ritgerð og skólabækur aðeins á milli. Kallarnir fóru í hella- klifur- og jeppaferð í gær og færðu mér heim fallega eyjasýn frá Paradísarhelli...

posted by Fanny | 18.4.04